Stoðþjónusta
Félagsráðgjöf
Félagsráðgjafi Hringsjár sér um gerð endurhæfingaráætlana, sér í lagi í tengslum við umsóknir um endurhæfingarlífeyri til Tryggingarstofnunar ríkisins. Félagsráðgjafi sinnir einnig eftirfylgni við útskrifaða nemendur.
Félagsráðgjafi leiðbeinir eða aðstoðar nemendur vegna úrlausna við félagsleg verkefni af ýmsum toga sem þeir glíma við á hverjum tíma.
Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfi aðstoðar nemendur við að koma rútínu á athafnir daglegs lífs með því að skoða hvaða þættir eru þeim mikilvægir að sinna og að passa upp á jafnvægi í daglegu lífi.
Nemendur fá aðstoð við að setja sér markmið, skipta þeim niður í viðráðanleg skref og stuðning við að fylgja þeim eftir.
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafar Hringsjár eru trúnaðarmenn og málsvarar nemenda. Þeir veita stuðning við nemendur vegna námserfiðaleika, skipulags í námi, prófkvíða og vegna persónulegra erfiðleika. Einnig hjálpa þeir nemendum að skoða gildi, færni, styrkleika og áhugasvið og aðstoða þau þannig við val á námi/ störfum.
Sálfræðiþjónusta
Einstaklingar sem eru á vegum VIRK starfsendurhæfingarsjóðs í námi í Hringsjá og þurfa stuðning og/eða meðferð í formi sálfræðiviðtala samkvæmt mati frá VIRK eru í sálfræðiviðtölum á vegum Hringsjár. Hringsjá er með samning við nokkrar sálfræðistofur.
Sérkennsla/lesblinda
Lesblinda og sértækir námsörðugleikar eru algengir meðal nemenda Hringsjár og margir hafa aldrei fengið greiningu. Nauðsynlegt er að staðfesta og skilgreina vandann til þess að hægt sé að finna og nýta viðeigandi aðferðir og leiðir.
Panta tíma hjá ráðgjafa
Hægt er að hringja í síma 510 9380 (kl. 9:00 til 15:30) eða hafa samband hér