Fjármálalæsi – FJÁR1AL01

Fjármálalæsi

Markmið áfangans er að nemendur öðlist skilning og öryggi til að takast á við algeng viðfangsefni tengd fjármálum einstaklinga, læri að halda einfalt heimilisbókhald og kunni skil á helstu atriðum á almennum fjármála- og vinnumarkaði.

Nemandi hafi almenna þekkingu og skilning til að:

  • finna leiðir til að öðlast yfirsýn á útgjöldum og tekjum
  • aðgreina útgjöld sín til að átta sig á daglegri neyslu
  • átta sig á mikilvægi sparnaðar
  • átta sig á gildum sínum og mikilvægi markmiðasetningar í fjármálum
  • skilgreina og skilja lán, sparnað, greiðslukort, vexti, gengi, verðbætur, ábyrgð o.fl.
  • skilgreina laun og launaútreikning og þar af leiðandi átta sig á launaseðlum
  • átta sig á hugtökum eins og vextir, verðbólga, verðtrygging, vextir, gengi, lán, debet og kredit

Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:

  • Útbúa einfalt heimilisbókhald til að hafa yfirsýn á útgjöld og tekjur
  • Setja sér markmið tengd fjármálum
  • Gera einfalda fjárhagsáætlun
  • Byggja upp sparnað á hagkvæman hátt
  • Reikna vexti

Nemandi skal vera fær um að nýta þekkingu sína og leikni til að

  • Tileinka sér ráðdeild og sparsemi
  • Skipuleggja fjármál sín á hagkvæman hátt
  • Ákvarða hvaða útgjöld eru nauðsynleg og hvar má draga saman til að eiga fyrir nauðþurftum

Námsmat
Einstaklingsverkefni, mætingar, lokapróf.

Kennslugögn
Ferð til fjár. Höfundur: Breki Karlsson.