Einstaklingum með taugaþroskaraskanir fer fjölgandi í öllum deildum Hringsjár og því var ákveðið að efna til fræðsluraðar fyrir starfsfólk. Föstudaginn 31. janúar fór fram fræðsla þar sem Ásdís Bergþórsdóttir, sálfræðingur og einhverfusérfræðingur, kom á vegum Einhverfusamtakanna og hélt fyrirlestur um einhverfu.
Föstudaginn 13. febrúar hélt Aðalheiður Sigurðardóttir fyrirlesturinn Ég er unik fyrir starfsfólk. Hún hefur sérhæft sig í málefnum einhverfra og hefur auk þess lokið þriggja ára námi í tilfinningagreind (EQ) við EQ Institute í Osló. Undirstaða fyrirlestra hennar er tengslamyndun og hvernig stuðla megi að bættri líðan í skólum og á vinnustöðum.
Í fyrirlestrinum fengum við ekki aðeins aukinn skilning á því hvað einhverfa er og hvernig hún birtist, heldur einnig hvers vegna. Um var að ræða afar lærdómsríka fræðslu sem mun efla enn frekar skilning starfsfólks á þörfum skynsegin einstaklinga.
Við þökkum þeim Ásdísi og Aðalheiði kærlega fyrir áhugaverða og gagnlega fyrirlestra.

Ásdís Bergþórsdóttir(tv) og Aðalheiður Sigurðardóttir(th).