Umsóknarfrestur er til 15. maí fyrir haustönn og 15. nóvember fyrir vorönn.
Panta má tíma hjá félagsráðgjafa eða náms- og starfsráðgjafa í síma 510-9380 (kl. 9:00 til 15:30) eða senda á almennt netfang Hringsjár, hringsja@hringsja.is til að fá frekari upplýsingar og ræða málin.
Inntaka nýnema
Inntökuferli við Hringsjá er þannig:
Umsókn
Umsækjandi sækir sjálfur um skólavist með því að fylla út umsókn. Aðstæður og hvati umsækjanda hefur áhrif á inntöku í skólann. Mikilvægt er að umsækjandi treysti sér í fullt nám.
Fullt nám
Fullt nám við Hringsjá er þrjár annir. Almennt er ekki tekið við umsóknum frá nemendum sem áður hafa lokið námi frá Hringsjá.
Tilvísun
Með umsókn verður að fylgja tilvísun/meðmæli frá viðurkenndum tilvísunaraðila (skv. gildandi þjónustusamningi), s.s. Tryggingastofnun ríkisins (endurhæfingarmatsteyminu), velferðarþjónustu sveitarfélags, Vinnumálastofnun, heilsugæslu eða öðrum sérfræðingum. Tilvísunin styður umsóknina og veitir jafnframt upplýsingar um heilsufarssögu viðkomandi.
Viðtöl
Umsækjandi styður umsókn sína um skólavist með viðtali við félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa eða forstöðumann þar sem rætt er um markmiðin með náminu, og hvort Hringsjá henti þeim markmiðum sem viðkomandi hefur.
Námskeið
Umsækjandi skal áður hafa lokið a.m.k. einu námskeiði hjá Hringsjá. Virkni og þátttaka á námskeiðum hefur áhrif á það hvort umsækjandi hlýtur skólavist. Við lok hvers námskeiðs fyllir kennari út matsblað þar sem hann metur hvort hann telji að nemandi sé tilbúinn að fara í fullt nám. Þá er sérstaklega horft til mætinga á námskeiðin og áhuga og virkni í tímum.
Mat á umsókn
Umsóknir um skólavist eru að öllu jöfnu metnar af forstöðumanni, félagsráðgjafa og náms- og starfsráðgjafa Hringsjár. Inntaka nemenda veltur á því hversu margar umsóknir berast hverju sinni, en heildarfjöldi nemenda við skólann er allt að 60 nemendur. Við mat á umsóknum er horft til ofangreindra þátta. Öllum umsóknum er svarað skriflega. Ef um er að ræða undantekningu á einhverjum ofangreindra þátta varðandi umsókn, getur afgreiðsla umsóknar verið borin undir stjórn Hringsjár. Ef umsækjandi er ósáttur við afgreiðslu umsóknar sinnar getur hann vísað máli sínu til stjórnar Hringsjár. Erindið skal vera skriflegt, og verður í framhaldinu tekið fyrir af stjórninni.
Efnisgjöld
Efnisgjöld á 1. önn eru kr. 30.000, en kr. 22.000 á 2. og 3. önn. Efnisgjöldin greiðast við upphaf náms á hverri önn.
Eyðublöð
Umsóknareyðublað er hægt að fá á skrifstofu Hringsjár, Hátúni 10d, eða sækja hér með því að smella tengilinn hér að neðan.
Tilvísunareyðublað
Með umsókn þarf almennt að fylgja með tilvísun frá þar til bærum aðila. Eyðublað fyrir tilvísendur er í tengli hér að neðan.
Umsóknarblað
Tilvisunarblað
Sækja um hér