Stefna Hringsjár
Starfsemi Hringsjár snýst um hjálp til sjálfshjálpar og byggir fyrst og fremst á ráðgjöf, stoðþjónustu, þverfaglegri endurhæfingu og samvinnu.
Starfsemi Hringsjár snýst um hjálp til sjálfshjálpar og byggir fyrst og fremst á námi, ráðgjöf, stoðþjónustu, þverfaglegri starfsendurhæfingu og samvinnu.
Sérstaða Hringsjár felst m.a. í því að um er að ræða einstaklingsmiðaða þjónustu. Þátttakendum býðst að nýta sér sérfræðilega ráðgjöf og starfsendurhæfingu sem hluta af endurhæfingunni.
Starfsþjálfun fatlaðra var stofnuð sem samstarfsverkefni Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) og félagsmálaráðuneytisins 6. október 1987. Nafninu var breytt í Hringsjá árið 1995.
Á þeim árum sem Hringsjá hefur starfað hefur starfsemin aukist jafnt og þétt og endurhæfingarframboðið tekið mið af þörfum einstaklinga og atvinnulífs. ÖBÍ réttindasamtök skipa í stjórn Hringsjá