Aðlögun og uppbygging eftir heilsufarsbreytingar
Lýsing:
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem hafa upplifað heilsufarsáskoranir eða aðrar lífsbreytingar sem haft hafa áhrif á virkni, líðan og daglegt líf. Námskeiðið styður þátttakendur í aðlögunarferli að breyttum aðstæðum og í að stíga næstu skref í átt að endurkomu til vinnu, náms eða aukinna lífsgæða. Áhersla er lögð á að mæta fólki þar sem það er statt og styðja við raunhæf og sjálfbær skref áfram
Markmið:
Að þátttakendur fái skilning á sálrænum og tilfinningalegum áhrifum heilsufarsbreytinga og breyttra lífsgæða.
Innihald:
- Að skilja breytingarnar – áhrif heilsufarsbrests á líðan og sjálfsmynd, sorgarviðbrögð og aðlögun að nýjum aðstæðum.
- Hugsanir og viðhorf – áhrif hugsana á líðan, hugræn skekkjur og leiðir til að þróa ný viðmið og lífsreglur.
- Bjargráð og jafnvægi – að finna leiðir til að aðlagast breyttum lífsgæðum, styrkja seiglu og viðhalda orku og þoli.
- Streitustjórnun – aðferðir til að takast á við streitu og efla stuðning í bataferli.
- Bakslagsvarnir og framtíðarsýn – að móta raunhæf markmið, viðhalda jafnvægi og undirbúa áframhaldandi uppbyggingu og vinnu og námsendurkomu
Kennsluaðferð:
• Sjálfsstyrkingaræfingar og verkefni
• Leidd núvitundaræfing / slökun
• Persónuleg markmiðasetning
Lengd námskeiðs:
5 skipti.
Tímasetining: Sjá námskeiðs yfirlit
Leiðbeinandi: Torfi Már Jónsson, sálfræðingur.