Að sjá og skapa


Grunnnámskeið í teikningu, litum og myndlist, að læra að horfa, greina og þróa eigin myndverk.

Markmið:

Að þátttakendur:

  • kynnist grunnatriðum teikningar og málunar
  • læri að skoða viðfangsefni út frá formi, hlutföllum, birtu og skugga
  • fái innsýn í litafræði og litablöndun
  • kynnist mismunandi efnum og aðferðum
  • þrói eigið vinnuferli og persónulega nálgun
  • öðlist aukið sjálfstraust í myndlist
  • upplifi myndlist sem leið til slökunar, einbeitingar og vellíðanar

Áhersla er lögð á að ferlið sé mikilvægara en „fullkomin“ lokaútkoma.

Markmiðið er ekki að allir geri eins myndir eða nái „fullkominni“ tækni. Frekar að hver þátttakandi fari út með grunnþekkingu, aukið sjálfstraust og reynslu af því að þróa eigin myndverk.

Markhópur:

Fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að læra grunn í myndlist og sköpun.

Innihald:

Farið verður í grunn í teikningu, birtu og skugga, litafræði, vatnslitum, akrýl, collage og skapandi myndgerð.

Áhersla er á að byggja upp sjálfstraust og vinnuferli þar sem nemendur læra að horfa, greina og þróa eigin myndverk.

Kennsluaðferð:

Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem nemendur vinna verkefni á eign hraða. Kennari leiðbeinir hverjum og einum á þann hátt sem hentar.

Ávinningur:

Þátttakendur munu hafa í lok námskeiðs lært grunn i fjölbreyttum aðferðum myndlistar, hvernig er hægt að nýta myndlistina til að td. róa hugann, auka sjálfstraust og bæta líðan.

Lengd námskeiðs:

6 skipti.

Tímasetning: Sjá námskeiðs yfirlit

Kennari: Svana Björk Jónsdóttir, myndlistarkennari