Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á fjölbreyttari og þyngri texta en áður og gerð er aukin krafa um sjálfstæði í verkefnavinnu og vinnuskilum. Lesin eru óstytt bókmenntaverk og þau túlkuð út frá víðara samhengi en áður með tilliti til sögu og bókmenntalegra skírskotana. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og geti rökstutt skoðanir sínar. Meginmarkmið áfangans er að nemendur kynnist sögu og menningu Bandaríkjanna með margvíslegum hætti þar sem alhliða færni í málinu er æfð. Nemendur rýna í ólíkan texta, bókmenntaverk, smásögur og greinar og fá tækifæri til að tjá sig á gagnrýninn hátt um viðfangsefnið.
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- orðaforða, hugtökum og hugmyndafræði sem einkenna Bandaríkin í nútíð og fortíð
- áhrifum sögu og menningar á fjölmenningarlegt samfélag Bandaríkjanna og áhrifum í
- alþjóðasamfélaginu
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi
- mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa margs konar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
- beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta og viðfangsefnis
- tjá sig skýrt, munnlega og skriflega um málefni sem hann hefur kynnt sér
- tjá tilfinningar, nota hugarflug og beita stílbrögðum í túlkun sinni á viðfangsefninu
- kafa dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni og leita fanga víðar en áður
- nýta sjálfstæði í vinnubrögðum og vera fær um að draga ályktanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- öðlast heildarsýn yfir sögu og menningu Bandaríkjanna í nútíð og fortíð
- skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
- taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
- eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt fyrir áheyrendum