Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á fjölbreyttari og þyngri texta en áður og gerð er aukin krafa um sjálfstæði í verkefnavinnu og vinnuskilum. Lesin eru óstytt bókmenntaverk og þau túlkuð út frá víðara samhengi en áður með tilliti til sögu og bókmenntalegra skírskotana. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og geti rökstutt skoðanir sínar. Meginmarkmið áfangans er að nemendur kynnist sögu og menningu Bandaríkjanna með margvíslegum hætti þar sem alhliða færni í málinu er æfð. Nemendur rýna í ólíkan texta, bókmenntaverk, smásögur og greinar og fá tækifæri til að tjá sig á gagnrýninn hátt um viðfangsefnið.
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- Bandaríkjum Norður-Ameríku, sögu þeirra, menningu og málnotkun. Einnig stjórnmálum í Bandaríkjunum, fjölmiðlum og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun
- viðhorfum og gildum sem hafa mótað bandaríska sem og íslenska menningu
- orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja vel sérhæfða texta og geta lesið sér til ánægju og/eða gagns texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu sem og myndmál og stílbrögð
- átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjall
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs og menningarlegs eðlis
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
- flytja vel uppbyggða, frumsamda frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
- lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem þeir hafa kynnt sér
- skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
- vinna úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag