Áfanginn er upprifjunaráfangi fyrir nemendur sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi í ensku á fullnægjandi hátt. Grunnatriði enskrar málfræði eru rifjuð upp. Áhersla er lögð á vandlegan lestur fjölbreyttra texta til að byggja upp orðaforða. Skriflegar æfingar er gerðar til að þjálfa orðaforða. Talmál er æft í tengslum við lesefni og hlustunarefni. Hraðlesið efni við hæfi nemenda.
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu menningarsvæðum þar sem enska er notuð sem móðurmál eða fyrsta mál
- stöðu enskrar tungu á Íslandi og erlendis
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi
- mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda
- dýpri merkingu texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina og skilja málfarsmun á mismunandi málsvæðum og við mismunandi aðstæður
- lesa margs konar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
- beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
- tjá sig skýrt, munnlega og skriflega um málefni sem hann hefur kynnt sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
- taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
- eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum
- tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt fyrir áheyrendum
- skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunaraðferðum sem við eiga