Markmið
Markmið Hringsjár er að veita náms- , starfs- og heilbrigðistengda endurhæfingu fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem vegna sjúkdóma, slysa, fötlunar eða annarra áfalla þurfa á endurhæfingu að halda til að takast á við nám og/eða að stunda atvinnu á almennum vinnumarkaði. Námsendurhæfingin hentar einnig þeim sem hafa litla grunnmenntun eða sértæka námserfiðleika. Stefnt er að því að þeir sem útskrifast frá Hringsjá séu færir um að takast á við nám í almennum framhaldsskólum og finna störf við hæfi á almennum vinnumarkaði.
Endurhæfingin felst í einstaklingsmiðaðri endurhæfingu í formi námskeiða, matsbrauta, einingabæru námi með sérhæfðri ráðgjöf og heilbrigðistengdri starfsendurhæfingu í Víðsjá. Endurhæfingin miðast við að:
- leggja eða endurnýja almennan þekkingargrunn einstaklinga
- undirbúa einstaklinga fyrir vinnumarkað
- efla persónulega færni einstaklinga, þ.m.t. sjálfstraust og þor.
- efla raunhæft sjálfsmat einstaklings svo hann þekki betur sjálfan sig, óskir sínar, hæfileika, getu og takmarkanir.
- efla félagslega færni einstaklinga
- auka samfélagslega þátttöku einstaklinga.
- auka lífsgæði einstaklinga og fjölskyldna þeirra.