Fyrirlestur um áföll

Dr. Sigrún Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor var með fyrirlestur á starfsmannafundi 13. mars, um áföll, áfallamiðaða nálgun og notkun Ace listans. Í janúar sl kom út bókin hennar Áfall, hvað svo? Við þökkum henni kærlega fyrir áhugaverðan fyrirlestur  

Fræðsla fyrir starfsfólk Hringsjár um taugaþroskaraskanir

Einstaklingum með taugaþroskaraskanir fer fjölgandi í öllum deildum Hringsjár og því var ákveðið að efna til fræðsluraðar fyrir starfsfólk. Föstudaginn 31. janúar fór fram fræðsla þar sem Ásdís Bergþórsdóttir, sálfræðingur og einhverfusérfræðingur, kom á vegum Einhverfusamtakanna og hélt fyrirlestur um einhverfu. Föstudaginn 13. febrúar hélt Aðalheiður Sigurðardóttir fyrirlesturinn Einhverfa- ferðalag inn í heim einhverfunnar fyrir […]

Lífshlaupið

Lífshlaupið hófst í gær, sunnudaginn 1. febrúar, og liðið Hringfari er búið að skrá sig til leiks. Liðsmenn í Hringfara komu saman í myndatöku á föstudaginn og þeir eru algjörlega tilbúnir í fjögurra vikna hreyfiátak! #lifshlaupid #hreyfing

Útskrift Hringsjár

Útskrift fer fram hjá Hringsjá miðvikudaginn 17. desember.Við útskriftina ljúka nemendur námi og endurhæfingu eftir þriggja anna dvöl hjá Hringsjá. Útskriftin markar mikilvægan áfanga í vegferð nemenda og er tilefni til að fagna árangri, þrautseigju og þeirri vinnu sem hefur átt sér stað á þessum tíma. Við óskum útskriftarnemum velfarnaðar í því sem tekur við. […]

Opnunartímar Víðsjár í sumar 2025

Víðsjá verður opin í sumar þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00–14:00, frá og með 15. júlí til 7. ágúst. Dagskráin verður sveigjanleg og allir eru velkomnir að mæta eins og hentar hverjum og einum. 📅 Stundatöfluna fyrir tímabilið má finna HÉR. Sjáumst í Víðsjá!

Námskeiðin í Hringsjá vorönn 2025

Við í Hringsjá bjóðum upp á fjölbreytt úrval af námskeiðum ár hvert. Hér fyrir ofan sjáið þið yfirlit yfir námskeiðin sem eru í boði þessa önnina. Ef þið smellið á linkinn hér fyrir neðan er hægt að lesa nánar um hvert og eitt námskeið (innihald námskeiðsins, hver kennir efnið ofl.) https://hringsja.is/namskeid/ Skráning á námskeiðin fer […]