Matsbraut
Hentar vel þeim sem vilja meta stöðu sína.
- Þeir sem þurfa að auka daglega virkni
- Þeir sem eru að stefna á nám en hafa verið lengi frá námi
- Þeir sem eru að stefna á starfsendurhæfingu hjá Hringsjá
- Almennir atvinnuleitendur
- Langtímaatvinnulausir
- Fólk með skerta starfsgetu
- Þeir sem vilja vera í litlum hóp með einstaklingsmiðaða nálgun
Lýsing á þjónustu:
Um er að ræða þjónustu í 1-2 mánuði. Þátttaka einstaklings telst fullnægjandi ef honum tekst meðal annars að mæta og taka þátt í þjónustu sem nemur 12-15 tímum á viku. Alltaf hægt að koma inn í hóp ef það er laust pláss. Að auki einstaklingsviðtöl við iðjuþjálfa, kennara og ráðgjafa Hringsjár.
Innihald/uppbygging brautar:
Verkefnavinna, tölvunotkun, valdefling, sjálfsstyrking, mat á færni, geðrækt og hreyfing t.a.m. jóga. Dagskráin miðar að því að styrkja sjálfsmynd þátttakenda og stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms eða starfs. Nálgun er einstaklingsmiðuð og efnistök fjölbreytt.
Lengd:
1-2 mánuðir, 12-15 st. á viku.
Kostnaður:
34.000 kr.