Yndislestur – námskeið

Námskeiðið er fyrir þau sem vilja endurvekja lestraráhuga og uppgötva gleði í lestri. Með fjölbreyttum textum, samræðum og skapandi verkefnum fá þátttakendur tækifæri til að styrkja færni sem nýtist í námi, starfi og daglegu lífi.

Markmið:

Að þátttakendur:

  • Njóti bókmennta á léttan og skemmtilegan hátt
  • Kynnist fjölbreyttum textagerðum og stílbrögðum
  • Taki þátt í umræðum um sögupersónur, atburðarás og önnur bókmenntaleg einkenni.
  • öðlist aukið sjálfstraust í að greina bókmenntatexta

Markhópur:

Fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að lesa sér til ánægju og um leið bæta almenna lestrarfærni, orðaforða, ritunarfærni og lesskilning.

Innihald:

Nemendur fá tækifæri til að njóta bókmennta á léttan og skemmtilegan hátt í gegnum fjölbreytta texta, allt frá smásögum og örsögum til brota úr stærri bókmenntaverkum. Við ræðum um sögurnar, sögupersónurnar, atburðarás og ýmislegt annað sem vekur áhuga okkar. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem tengjast lestrinum.

Kennsluaðferð:

Kennari les ólíka texta með nemendum (þ.e. upphátt). Nemendur vinna fjölbreytt verkefni út frá textum.

Ávinningur:

Markmi námskeiðsins er að efla lestraráhuga, auka bókmenntavitund og skapa jákvæða upplifun af lestri.

Lengd: 6 skipti.

Kennari: Guðný Frímann Jónsdóttir, íslenskukennari