Spennandi fyrirlestur fyrir starfsfólk Hringsjár

Föstudaginn 4. september sl. var fræðsla fyrir starfsfólk Hringsjár en þá kom Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir, með fræðsluerindið „Inngildandi og heilsueflandi menntaumhverfi“.

Í fyrirlestrinum fór Jóhanna yfir mikilvægi þess að skapa námssamfélag þar sem vellíðan og fjölbreytileiki eru höfð að leiðarljósi. Fjallaði hún meðal annars um hvernig hægt er að nýta algilda hönnun á námi (UDL) og nútíma tækni til að búa til umhverfi sem styður við bakið á öllum hópum nemenda og dregur úr brottfalli og vanlíðan

Share the Post: