Siðareglur

1. gr. Markmið siðareglna

Markmið þessara reglna er að skilgreina það viðmót í samskiptum sem starfsmönnum, fulltrúum í stjórn og fulltrúaráði auk verktaka ber að sýna við störf sín á vegum Hringsjár.
Siðareglur þessar ber ekki að skoða sem tæmandi lýsingu á góðum starfsháttum og skulu starfsmenn og fulltrúar ávallt beita dómgreind sinni í samræmi við aðstæður.

2. gr. Lög og reglur

Við gætum þess í störfum okkar að fylgja stefnu, skipulagsskrá og öðrum reglum Hringsjár. Við gætum hagsmuna stofnunarinnar og setjum þá ofar sérhagsmunum.

3. gr. Ábyrgð í samskiptum

Við gegnum störfum okkar af alúð og samviskusemi, gætum kurteisi, lipurðar og réttsýni og veitum þeim sem til okkar leita aðstoð og leiðbeiningar.

  • Við sýnum hvert öðru ávallt kurteisi og virðingu í samskiptum.
  • Við komum fram við fólk af fordómaleysi og tillitssemi.
  • Við berum virðingu fyrir margbreytileika fólks hvað varðar fötlun í víðum skilningi, félagslega stöðu, kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, aldur, útlit, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins.
  • Við gætum jafnræðis milli mismunandi fötlunar- og sjúklingahópa.
  • Við forðumst hvers konar mismunun í framkomu, ræðu og riti.
  • Við virðum fundasköp, mætum stundvíslega og höldum okkur við efnið.
  • Við vörumst forræðishyggju, virðum rétt hvers annars til ólíkra skoðana og leggjum áherslu á málefnalega umræðu.
  • Við gagnrýnum málefnalega, hlustum og tökum gagnrýni.
  • Við grípum ekki fram í þegar aðrir tala og gefum öllum tækifæri til þess að klára mál sitt.
  • Við biðjum fólk að endurtaka sig ef við heyrum eða skiljum ekki.
  • Við virðum mismunandi tjáskiptaleiðir og beinum máli okkar að einstaklingnum sem við erum í samskiptum við en ekki túlki eða aðstoðarmanni.
  • Við segjum það sem okkur býr í brjósti án þess að meiða aðra, spyrjum, upplýsum og miðlum.

4. gr. Einelti, kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi
Einelti, kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi er ekki liðið. Við erum ávallt á varðbergi og okkur ber að bregðast við ef við verðum vitni að slíkri háttsemi. Viðbragðsáætlun vegna eineltis, kynbundinnar áreitni, kynferðislegrar áreitni og ofbeldi (EKKO) er til staðar til að tryggja skýra verkferla í samræmi við ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn EKKO á vinnustöðum.

5. gr. Ráðdeild í fjármálum
Við virðum fjárhagsáætlanir og aðhöfumst ekkert sem felur í sér misnotkun á eignum og fjármunum Hringsjár. Við virðum eftirlit og úttektir, sem framkvæmdar eru af skoðunarmönnum og endurskoðendum Hringsjár og leggjum okkar af mörkum til þess að markmið þess náist.

6. gr. Gjafir og fríðindi
Við þiggjum ekki gjafir, sem túlka má sem persónulega þóknun fyrir greiða eða ívilnun.

7. gr. Samskipti við fjölmiðla og framkoma á opinberum vettvangi
Að jafnaði kemur framkvæmdastjóri Hringsjár fram fyrir hönd stofnunarinnar í fjölmiðlum nema annað sé ákveðið. Í samskiptum við fjölmiðla og á opinberum vettvangi högum við málflutning okkar í samræmi við stefnu Hringsjár og siðareglur þessar.
Við veitum réttar upplýsingar, fullyrðum ekki meira en vitneskja gefur tilefni til og gætum trúnaðar.

8. gr. Miðlun og endurskoðun

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að kynna siðareglur fyrir nýjum starfsmönnum og formaður stjórnar fyrir nýjum stjórnarmönnum og fulltrúum í fulltrúaráði.
Siðareglurnar skulu teknar til umræðu í stjórn eftir árlegan aðalfund og endurskoðaðar ef þurfa þykir.

9. gr. Trúnaður
Okkur ber að gæta þagmælsku um málefni sem við fáum vitneskju um í starfi okkar og trúnaður á að ríkja um eftir eðli máls eða samkvæmt lögum. Trúnaðarskylda helst þó látið sé af störfum.
Siðareglurnar eru birtar á heimasíðu Hringsjár

Reglur þessar voru samþykktar af stjórn og fulltrúaráði Hringsjár endurhæfingar þann 5. júní 2026