Kennari: Gígja Baldursdóttir
Markmið áfangans er að efla menningarlæsi, samskiptafærni og alþjóðlega meðvitund nemenda með áherslu á samfélagslega þátttöku og gagnvirkt nám í alþjóðlegu samhengi.
Nemendur taka þátt í undirbúningsvinnu, heimsækja samstarfsskóla erlendis og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum með jafningjum í viðtökulandi. Að ferð lokinni miðla nemendur reynslu sinni og lærdómi til annarra.
Markmið (námsmarkmið og viðmið um þekkingu, leikni og hæfni)
- Menningu, sögu og samfélagi samstarfslandsins.
- Grunnhugtökum í alþjóðlegum samskiptum og menningarlæsi.
- Hlutverki ungs fólks í samfélagslegri þátttöku á alþjóðavettvangi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Undirbúa og flytja kynningar fyrir erlenda áhorfendur.
- Taka þátt í umræðum og samstarfi með erlendum jafningjum.
- Skipuleggja og framkvæma skapandi verkefni sem miðla íslenskri menningu.
Nemandi skal geta nýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Beita menningarlæsi og gagnrýninni hugsun í alþjóðlegum samskiptum.
- Sýna frumkvæði og ábyrgð í fjölmenningarlegum verkefnum.
- Meta og miðla eigin reynslu í alþjóðlegu samhengi.
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur:
Nemendur læra um viðkomandi land og samfélag með áherslu á menningu, sögu og daglegt líf. Þeir taka þátt í umræðum með erlendum gestum, sem og í hópverkefnum sem efla skilning á fjölmenningu. Einnig útbúa þeir kynningarefni um Ísland og íslenska menningu og undirbúa námskeið eða verklegt efni sem þeir flytja erlendis.
Ferðin:
Nemendahópurinn ferðast til samstarfslands þar sem hann kynnir íslenska menningu í skólum eða ungmennasetrum og tekur þátt í samstarfsverkefnum með erlendum nemendum.
Hópurinn getur einnig haldið stutt námskeið, t.d. í matargerð, listum eða handverki, eftir eðli og áherslum verkefnisins.
Eftir heimkomu:
Að ferð lokinni halda nemendur kynningu þar sem þeir segja frá dvölinni, menningu viðtökulandsins og persónulegri reynslu sinni.
Þátttaka:
Nemendur þurfa að sækja sérstaklega um þátttöku í ferðinni.
Námsmat byggist á fjölbreyttum aðferðum og tekur mið af hæfniviðmiðum áfangans:
• Leiðsagnarmat með reglulegri endurgjöf og sjálfsmati.
• Mat á frammistöðu í verkefnum, kynningum og samvinnu innanlands og erlendis.
• Lokaskýrsla eða kynning þar sem nemandi greinir frá reynslu sinni og lærdómi.