Útskrift fer fram hjá Hringsjá miðvikudaginn 17. desember.
Við útskriftina ljúka nemendur námi og endurhæfingu eftir þriggja anna dvöl hjá Hringsjá.
Útskriftin markar mikilvægan áfanga í vegferð nemenda og er tilefni til að fagna árangri, þrautseigju og þeirri vinnu sem hefur átt sér stað á þessum tíma.
Við óskum útskriftarnemum velfarnaðar í því sem tekur við.