Tölvur – námskeið

Markmið:

Að efla færni þátttakenda í undirstöðuatriðum tölvunotkunar til undirbúnings í námi í skóla eða til eigin nota.

Markhópur:

Gert er ráð fyrir að nemendur séu byrjendur eða hafi takmarkaða tölvukunnáttu.

Innihald:

  • Windows 11 umhverfið: skjáborðið, lyklaborðið, mús, gluggar, leit og ýmsar stillingar
  • Ritvinnsla: lyklaborðið, almenn textavinna í Word
  • Internetið: fara á netið, leit að efni og myndum, stillingar
  • Tölvupóstur: helstu póstaðgerðir
  • Teikning: unnið með tilbúin form

Námsefni:

Nemendur fá til eignar vandað hefti með leiðbeiningum og verkefnum og geta sótt verkefnin á netið til að æfa sig heima.

Kennsluaðferð:

Lögð er áhersla á sjálfstæða vinnu þátttakenda. Atriði eru kynnt og síðan vinna nemendur fjölmargar verklegar æfingar á eigin hraða með aðstoð kennara

Ávinningur:

Þeir nemendur sem stunda námið vel og leggja sig fram munu fá góða innsýn í hvað hægt er að gera á tölvu og æfingu í að nota það.

Tímasetining: Sjá námskeiðs yfirlit

Kennari: Gunnar Möller, stærðfræðikennari í Hringsjá og með BSc í tölvunarstærðfræði og stundar kennslufræði í HÍ.